Heineken hafa sett upp leik (app) á facebook síðu sinni sem raunverulega þjónar þínum hagsmunum, ef þú ert bjórsvelgur. Hverjum langar ekki í bjórdælu í íbúðina hjá sér. Ef ekki núna, þá pottþétt þegar þú varst einhleyp/ur.
Nú stærsta vandamálið fyrir jólavertíð Heineken hefur augljóslega verið að selja þessar fínu bjórdælur sem veglega jólagjöf. Ekki beint það sem þér dettur fyrst í hug, þegar leitast er eftir pakka handa vinum eða vandamönnum. Hinsvegar kann að vera að þú sjálf/ur myndir
hoppa hæð þína af kæti ef slíkan pakka mætti finna (á sér) á aðfangardag.
Með Facebook appi Heineken getur þú núna splæst í svona dælu á "vin" sem sárlega vantar bjórdælu til að halda "gleðileg" (já, setti gæsalappir við hversu raunveruleg sú gleði yrði) jól. Appið síðan tryggir að við að gefa svona dælu, verði þér einnig færð slík dæla að gjöf. Það einfaldlega birtist huggulegur bögull heima hjá þér frá "Lúlla Jóns", sem er núna uppáhalds vinur þinn á fésinu.
Frábær notkun á facebook App. Sjá síðu Heineken
No comments:
Post a Comment