Monday, December 5, 2011

Það sem þeir rita, skiptir öllu máli

Ég tel það víst, að hvort sem þú ert bílstjóri, forstjóri, námumaður eða námsmaður þá ertu vafalaust búnn að átta þig á krafti samfélagsmiðla.

Netið hreinlega logar, þar sem menn virðast ræða óspart (og án nærgætni) ákveðið málefni sem virðist vera milli tannanna hjá öllum.  Keppast um að senda hvor öðrum hvimleiða "like" leiki og/eða skiptast á sögum úr daglegu lífi.  Hvað var gert, hvert var farið, hvað var keypt og hvernig var.

Hefðbundinn neytandi talar um eða nefnir fyrirtæki (vöru þess eða þjónustu) yfir 90 sinnum í hverri viku, þar sem hann hefur með því áhrif á ímynd þess og orðspor (Keller Fay, WOMMA, 2010)  og kauphegðun vina og kunningja.  Í rannsókn sem gerð var af síðunni My Yearbook, sögðust 81% aðspurðra hafa þegið ráð frá fésbókar félögum áður en ákveðin vara eða þjónusta var keypt.  74% þeirra sögðust taka mark á því sem vinir þeirra höfðu að segja um vöruna.

Einnig kom í ljós að 9 af hverjum 10 segist treysta því sem vinir þeirra deila á facebook sé satt. Það sem er enn merkilegra er að um 70% aðspurðra viðurkenna að taka mark á því sem ókunnugir hafa að segja um viðkomandi vöru, vörumerki eða þjónustu á þessum miðlum.

Hvað segir þetta okkur.  Jú mögulega ættu íslensk fyrirtæki betur að huga að fylgjendum á facebook frekar en að snara öllu í (misgóða) leiki.   Hvernig væri að reyna að fá fólk til að deila jákvæðum punktum um vöru eða þjónustu? Í stað þess að "spama" allt og alla með stöðluðum textum um ágæti vöru eða fyrirtækis, þegar þú tekur þátt í leikjum á þeirra vegum (auto post) - sem fer ofan í kokk okkar flestra alveg þveröfugt. 

Hvernig væri að virkja fylgjendur á facebook til að koma með nytsamlega punkta um það sem betur má fara? eða leitast eftir rós í hnappagatið fyrir það sem vel gengur.  Því það er heldur ekkert launungarmál að það eru ófá fyrirtæki hérlendis sem eru að sinna þessum málum mjög vel.  Huga að núverandi viðskiptavinum & hlusta á þá.... ekki bara í síma, heldur hvað þeir segja á netinu.  Afhverju, nú það hreinlega sparar skilding og mögulega skilar sér í aukinni sölu.

Auðvelt er að lofa, örðugt að efna .... eitthvað sem mörg fyrirtæki / auglýsingastofur ættu að taka til sín.

No comments:

Post a Comment