
Nú verð ég að játa að við lestur á þessari frétt, fetti ég upp á nefið og fussaði. Ef ég væri yfirmaður í Nýherja veit ég ekki hvort ég væri bitrari út í blaðamann mbl sem (á skemmtilegan máta) hreytir í fyrirtækið í loka setningunni, þar sem hann tekur fram að Nýherji jafnt styðji við landslið kvenna í handbolta sem og reki þær sem hann stunda um of. Nú eða upplýsingarfulltrúann fyrir að "missa stjórn" á umfjölluninni á þennan máta.
Gildin
Að styðja kvennalandsliðið í handbolta, en láta síðan spyrjast út að starfsmaður hafi þurft að velja milli starfs og leiks. Það vekur upp spurningarmerki um gildi fyrirtækisins. Gildum er ætlað að ýta undir góð vinnubrögð með því að hafa jákvæð áhrif á starfsmenn og tilgreina þá hegðun sem er ásættanleg. Með þessu móti fær starfsfólk frelsi til athafna, en er þó bundið þeim grunngildum sem höfð skulu að leiðarljósi. Skeggjaðir menn (fræðimenn) eru á því að sameiginleg gildi efla bæði viðleitni starfsmanna og frammistöðu fyrirtækisins í heild.
Orðspor og ímynd Nýherja
Nýherji er eitt af 20 bestu fyrirækjum Íslands til að starfa fyrir, samkvæmt mælingum VR. Fyrirtækið er einn helsti hástökkvarinn í leitinni að fyrirtæki ársins 2011. En milli ára hoppar Nýherji úr 93.sæti í það 17. Ber þar helst að nefna frábærar tölur í mælingu á ímynd fyrirtækisins, sem er töluvert yfir meðaltali.
Hvaða áhrif hefur svona frétt?
Það er einfalt. hún hefur bein áhrif á viðhorf okkar til fyrirtækisins. Viðhorf birtast okkur í daglegu lífi meðal annars í formi fordóma og staðalmynda. Viðhorf eru sálfræðileg tilhneiging sem tjáð er með því að meta tiltekin hlut jákvætt eða neikvætt. Tilfinningar og mat á einherju, sem skilar ákveðinni mælanlegri svörun má þannig skilgreina sem viðhorf. Þessi ágætu viðhorf okkar sem eru allt í senn jákvæð eða neikvæð, á rökum reist eða hreinlega byggð á sögusögnum. Þannig er augljóst að frétt sem þessi getur haft afgerandi áhrif á viðhorf almennings . Viðhorf hefur síðan bein áhrif á mat viðkomandi á Nýherja og þannig á þá ímynd (orðspor) sem fyrirtækið hefur í huga hvers og eins (Misjafnt hvernig hver og einn uplifir fyrirtækið, þessa frétt nú eða aðra viðburði)
Og hvað með það?
Flestir telja sig vita upp á hár hvað átt er við þegar talað er um ímynd, en þó er vert að benda á að merking hugtaksins er einfaldlega ekki alltaf svo skýr. Í daglegu tali vísar ímynd oftast til þeirra viðhorfa og trúar sem viðkomandi hefur á einstakling, fyrirtæki, vöru eða vörumerki. Án þess að detta of mikið í fræðimensku er þó vert að benda á að ímynd má skipta í vöruímynd og fyrirtækjaímynd. Með vöruímynd er átt við þá skoðun eða reynslu sem þú (neytandinn) hefur af viðkomandi vöru / vörumerki. Vörur eru framleiddar og auðveldara er að stjórna og byggja hana upp. Vöruímynd hefur síðan mikil áhrif á ímynd fyrirtækisins í heild. En ímyndin sem við erum að tala um hér, er mun stærri & mun verðmætari. Hér erum við að lesa um frétt sem mögulega hefur "bein áhrif" á heildarsýn okkar á fyrirtækinu. En lykilþættir í fyrirtækjaímynd eru einmitt nafn, staðsetning, höfuðstöðvar og síðast en ekki síst - samskipti við starfsfólk.
Við viljum ekki versla við fyrirtæki sem eru með neikvæða ímynd. Við viljum ekki starfa fyrir fyrirtækja sem hafa slaka ímynd & við gefum slíkum fyrirtækjum minna svigrúm komi eitthvað upp á. Skjót og fagleg vinnubrögð geta haft áhrif á "laskaða ímynd" fyrirtækja, en ég er hér ekki að leggja dóm á það hvort þetta mál sé svo drastískt eður ei. Hinsvegar vildi ég einfaldlega benda á mikilvægi þess að samræmi sé á öllu efni sem snýr að fyrirtækinu. Hvort heldur sem um er að ræða á heimasíðu, fésbókinni markaðsefni (við styrkjum kvennalandsliðið í hanbolta) nú eða í frétt sem þessari. Auk þess skiptir sköpum hvað talsmenn / yfirmenn Nýherja gera nú.
Spurning hvort aurinn sem fór til styrktar kvennalandsliðinu í handbolta sé hér farinn í vaskinn?
Einar, þú spyrð í endann, "Spurning hvort aurinn sem fór til styrktar kvennalandsliðinu í handbolta sé hér farinn í vaskinn?" Algjörlega...
ReplyDeleteSérstaklega er þetta erfiður hópur til að styggja... Öll N1 deild kvenna er að tala um þetta. Konur... já konur tala um svona í marga mánuði :)
Kv. Davíð Lúther
Ég held að mistökin hjá Nýherja hafi verið að ráða hana Guðnýju til að byrja með. Mín skoðun er sú að afreksíþróttamenn eru verstu starfsmennirnir (smá alhæfing en það er bara gaman). Ástæðan er sú að þeir þurfa frí til að fara á æfingar, til sjúkraþjálfara, á aukaæfingar í kappleiki og svo síðast en ekki síst í keppnisferðalög til útlanda.
ReplyDeleteÞví miður er það samt þannig að stelpurnar fá ekki sömu laun og strákarnir þannig þær þurfa að vinna með sportinu, á meðan þeir geta flestir haft handboltann að aðalvinnu. Ég held að það sé aðalfréttin í þessu