Nú nýlega opnaði google+ á síður fyrir vörumerki & fyrirtæki. Síðurnar eru við fyrstu sýn keimlíkar fanpage síðum facebook, en svo er þó ekki. Það sem er merkilegast í þeim samanburði er að hvorki notendur né fyrirtækin virðast vera að nota þessar síður af einhverju viti. Einfaldlega byrjuðu "allir" en síðan ekki söguna meir.
Helstu vörumerki heims voru fljót að stökkva um borð, þegar Google opnaði fyrir þennan möguleika. Hér fyrir neðan má finna lista af erlendum og íslenskum vörumerkjum / fyrirtækjum á google+. Allar síðurnar líta virkilega vel út og er greinilegt að vinna hefur verið lögð í að setja þær smekklega upp. Í dæmunum hér fyrir neðan, má sjá að tvíhliða-samskipti eru nær engin og fylgjendur eru nær dauða en lífi. Þátttaka og virði þeirra er því ei mikið.
Pepsi (20130 - fylgjendur)
Einn stærsti drykkjarframleiðandi heims, var ekki lengi að setja upp + síðu fyrir sitt vörumerki. Pepsi sem hefur verið leiðandi í notkun samfélagsmiðla, var í fyrstu hrósað fyrir flotta nálgun og notkun á google+. Náði upp stórum hópi fylgjenda og voru teknir sem dæmi um hvernig ætti að nýta þennan nýja miðil. Nú hinsvegar hefur google+ síða Pepsi ekki verið uppfærð í nær þrjár vikur.
Coca Cola (837 - fylgjendur)
Hér er sömu sögu að segja. Coke menn voru fljótir að skella upp flottri
síðu, en að sama skapi hafa þeir ekki uppfært síðuna í nær tvær vikur.
Ef horft er á síðasta status má sjá að það eru aðeins 5 virkir notendur,
sem taka þátt í samskiptum við vörumerkið.
McDonalds (540 - fylgjendur)
Kannski eru þeir enn að móta sína stefnu og nálgun á google+, eða
einfaldlega hættu þeir bara við áður en þeir byrjuðu. Því þessi
risastóra keðja hefur ekki einu sinni sett inn einn status, mynd eða átt í
samskiptum við fylgjendur sína á neinn hátt. Enda er hópurinn sem
fylgir makkanum lítill sem enginn.
Síminn:(4 - fylgjendur)
Síminn ásamt kollegum sínum úr fjarskiptageiranum hafa verið mjög virkir
í notkun helstu samfélagsmiðla. Síminn hefur sett upp sína + síðu, sett
inn hressandi status (plús í kladdann fyrir húmorinn) en ekkert hefur
síðan gerst í þrjár vikur. Vodafone
Það sama má segja um Vodafone og Símann. Sett hefur verið upp mjög smekkleg + síða, þar sem fylgjendur hafa átt í nær engum samskiptum við vörumerkið
Pipar (5 -fylgjendur)
Auglýsingastofan sem gefur sig út fyrir að vera algjörlega "spot on" í samfélagsmiðlum, hefur heldur ekki virkjað sína + síðu. Allavega er hér ekkert að finna ... einfaldlega ekkert.
Ekkert er fullreynt í fyrsta sinn. Google hefur nú brennt sig á því að reyna að skapa samfélagsmiðil áður. Er google+ ekki með það sem þarf, eða eru notendur einfaldlega bara búnir að fá nóg af "corporate" fnyknum sem gnæfir yfir alla samfélagsmiðla?
Merkilegt hvað fólk er alltaf hrætt við að skilja eftir athugasemdir
ReplyDeleteÉg er sammála. Það er hrikalega mikill doði yfir Google Plus. Sem er synd, þar sem það gæti verið virkilega góður vettvangur til að ræða mismunandi efni í þeim "hringjum" sem við á. Betri en Facebook t.d. þar sem flokkunin er meira "natural" og hentugri en Twitter þar sem er bara hægt að skrifa 140 stafi.
Persónulega er ég að elska Google+. Ég hef átt fleiri merkilegri samtöl og spjöll um hugðarefni mín þar inni síðan þetta opnaði en á Facebook frá upphafi.
ReplyDeletePlúsinn er meira eins og Twitter. Maður setur fólk í hringi sem eru sérfræðingar á sínum sviðum eða deilir sömu áhugamálum og maður sjálfir og maður "eltir" það. Massinn af fólki er svo ekkert kominn þarna inn heldur bara þessir týpisku early adopters.
Fyrirtæki eiga eftir að fatta hvað þarna er hægt að gera. Ég fyrir hönd Símans er mjög spenntur fyrir Plúsnum en því þarna er hægt að eiga miklu beinni samskipti við fólk heldur en Facebook leyfir.
En það vantar samt mikið uppá fyrir bakendann. Aðeins einn notandi getur verið stjórnandi og það vantar öll tól. Þannig að það er ekkert skrýtið að fyrirtæki haldi að sér höndum, menn bíða eftir að Google opni þetta almennilega fyrir fyrirtæki, komi jafnvel sýnidæmi og þá fyrst getur ballið byrjað.
Svo á meðan að massinn er á Facebook verður minni hávaði á Plúsnum og þá kannski hægt að nýta hann í einhverjar frumlegar og skemmtilegar pælingar.