Undanfarin ár hafa iPhone notendur haft svör á reiðum höndum, afhverju þeir myndi ALDREI skipta yfir í Android.
- upphaflega, voru Android tækin álíka spennandi og súrkál við hlið iPhone
- Þegar handtækin urðu betur samkeppnishæf, var hægt að benda á að iOS stýrikerfið væri mun stærra & hentugara til vöruþróunar.
- Þegar Android varð stærsta stýrikerfið, var hægt að benda á að það væri jú sameiginleg tala margra framleiðanda. Apple vær því ennþá stærsti framleiðandinn & töffarinn á markaðnum.
En nú er staðan sú að Android er ekki bara stærsta stýrikerfið, Á þriðja ársfjórðungi þessa árs hefur framleiðandinn Samsung snýtt Apple og situr nú á toppnum (like a BOSS) sem stærsti snjallsímaframleiðandi heims.
Samsung orðnir hressilega hrokafullir?
Já & ég er að fíla það. Að bíða í röð eftir nýrri Apple vöru, hefur orðið að einhverskonar "trendi" út í hinum stóra heimi. Þar virðast lattelepjandilopapeysupakk safnast saman í hópum til að vera með þeim fyrstu til að fingra nýjan iPhone eða fikra sig áfram á nýjum iPad. Hér erum við ekki að tala um eðlilega röð, heldur eitthvað sem er korter í klikkun. Fólk safnast jafnvel saman mörgum dögum áður en opnað er.
Samsung, nýkrýndur konungur á markaðnum er ekki með þetta "hippster touch" sem Eplið hefur. Þeir eru þó heldur betur að svara fyrir sig og ég verð að segja að fyrir mitt leyti, náði þessi auglýsing til mín. Hún allavega er hress og það er bókað að hún fer mjög væral og það mjög hratt.
Hvað um það …. ég ætla að skipta úr Samsung Galaxy símanum yfir í nýjan Iphone 4s, því nú get ég með réttu sagt að ég sé ekki hjarðdýr. Ég vill ekki vera eins og pöpullinn með Samsung síma :Þ
No comments:
Post a Comment